Veistu hvað David Blaine getur haldið niðri í sér andanum lengi? Vissirðu að David Copperfield lét einu sinni Frelsisstyttuna hverfa? Vissirðu að Stephen Fry og Karl bretaprins eru meðlimir í samtökum töframanna? Allar þessar staðreyndir og miklu fleiri staðreyndir um merkilega karlmenn má finna í þætti vikunnar. Gummi og Vigdís tala um siðferðislega ábyrgð töframanna og Lalli töframaður segir frá því þegar hann glataði töfrum barnæskunnar og seldi sál sína töfradjöflinum, einungis 6 ára gamall. Eða hann orðaði það ekki beint svoleiðis en þú veist.
Umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís HafliðadóttirGestur: Lárus Blöndal GuðjónssonStef: Bjarmi HreinssonLag: Pilot - Magic (í mörgum útgáfum)
Podchaser is the ultimate destination for podcast data, search, and discovery. Learn More