Í staðinn fyrir að við þurfum að eyða árum í að kenna gervigreind að gera eitthvað, nú geta þær [tölvur] lært það sjálfar. Þetta opnar ótrúlegan heim af nýjum tækifærum, segir Yngvi Björnsson prófessor í tölvunarfræði við HR um sigur gervigreindarforritsins AlphaZero á skáktölvunni Stockfish.